Til baka

Inntak Úlfsárstöðvar

Inntak Úlfsárstöðvar

Frágangi á landi í kringum inntak Úlfsárstöðvar er nú lokið.

Inntakið er með sjálfhreinsandi Coanda inntaksristum frá Aquashear sem hafa reynst alveg einstaklega vel við mismunandi aðstæður á Íslandi.

Inntaks trektin er smíðuð hjá vélsmiðju Þrastar Marselíusarsonar á Ísafirði sem auk þess smíðaði mannops lokið á inntaksþrónna.

Til gamans má geta þess að einn ágætur hundaeigandi á Ísafirði kemur daglega með fallega hundinn sinn til að leyfa honum að fá sér sundsprett í inntakslóninu.

Vilt þú vita meira?

Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar um verkefni og lausnir.

Hafa samband