Fréttir
Fylgstu með nýjustu fréttum og tilkynningum frá Orkuver. Hér birtum við fréttir af verkefnum, nýjungum og atburðum tengdum starfsemi okkar.

Virkjun í Vatnsfirði veitir meira öryggi en tvöföldun flutningslínu
Vatnsfjarðarvirkjun í Vatnsfirði muni auka afhendingaröryggi forgangsorku á Vestfjörðum meira heldur en að tvöfalda Vesturlínu 160 km leið.

Gleðilegt nýtt ár 2022
Sendum viðskiptavinum okkar, starfsmönnum og öllum landsmönnum, okkar bestu óskir um gleðilegt nýtt ár og þökkum jafnframt árið sem er að líða.

Inntakstrekt Galtarvirkjun
Vélsmiðjan Stálvík smíðaði fyrir Orkuver þessa líka flottu inntakstrekt sem notuð verður í Galtarvirkjun í Gilsfirði.

Nýr skotbómulyftari
Orkuver ehf hefur fest kaup á nýjum Weidermann T4512 skotbómulyftara af Kraftvélum og mun hann aðallega verða notaður við byggingaframkvæmdir.

Galtarvirkjun í Garpsdal
Framkvæmdir við nýja tæplega 1 MW virkjun hófust í Júní á þessu ári og ganga framkvæmdir vel. Gert er ráð fyrir að hún verði gangsett í september 2022.

Orkuver kaupir Steypustöð
Orkuver hefur fjárfest í fullkominni steypustoð frá Elkon í Tyrklandi. Þetta er algörlega sjálfvirk stöð sem skilar steypunni nákvæmlega eins og óskað er eftir.

Nýr starfsmaður
Nýlega hóf störf hjá Orkuveri Ásgeir Óli Ásgeirsson eða Ásgeir JUNIOR sem er yngsta barn framkvædastjóra Orkuvers.

Nýja húsið okkar að taka á sig mynd
Nýja húsið okkar að Hafnarbakka 5, á Flateyri er smá saman að taka á sig mynd og verður vonandi príði sem við getum verið stoltir af.

Hvesta 3 komin í gagnið
Orkuver ehf hefur lokið framkvæmdum við byggingu Hvestu 3 í Fremri Hvestu í Arnarfirði. Um er að ræða litla virkjun sem nýtir vatnið frá Hvestu 1 og 2.

Orkuver kaupir atvinnuhúsnæði
Orkuver hefur keypt atvinnuhúsnæði í Flateyri sem mun hýsa starfsemi fyrirtækisins á Vestfjörðum.

Framkvæmdir Hvestuveita 3
Framkvæmdir við Hvestuveitu 3 eru vel á veg komnar. Unnið er að uppsetningu innviða virkjunarinnar.

Hvesta 3 – Framkvæmdir hafnar
Framkvæmdir við Hvestuveitu 3 hafa hafist. Gert er ráð fyrir að virkjunin verði tekin í notkun árið 2020.

Inntak Úlfsárstöðvar
Frágangi á landi í kringum inntak Úlfsárstöðvar er nú lokið. Inntakið er með sjálfhreinsandi Coanda inntaksristum frá Aquashear.

Úlfsárstöð - Uppsetning vélbúnaðar
Búið er að koma fyrir vélbúnaði í stöðvarhúsi Úlfsárstöðvar í Dagverðardal. Búnaðurinn kemur frá Global Hydro Energy í Austurríki.

Úlfsárstöð - Vinna hefst á ný
Vinna er nú hafin á ný við stöðvarhús Úlfsárstöðvar. Búið er að mála spennarýmið og verður spennirinn settur inn næstkomandi fimmtudag.

Coanda ristar frá Orkuveri
Arnarlax fjárfestir í sjálfhreisnandi ristum. Fiskeldisfyrirtækið Arnarlax hefur fest kaup á COANDA ristum frá hinum virta framleiðanda aquashear.
