Til baka
Úlfsárstöð - Uppsetning vélbúnaðar

Búið er að koma fyrir vélbúnaði í stöðvarhúsi Úlfsárstöðvar í Dagverðardal. Búnaðurinn kemur frá Global Hydro Energy í Austurríki og er byggður á ramma sem gerir alla uppsetningu afar fljótlega og þægilega.
Aðeins tók um 6 klst að koma honum fyrir á réttum stað og var síðan hafist handa við að tengja fallpípuna við inntaksrörið og kaplana á spennin.
Steypt var síðan utanum inntaksrörið og beðið í 28 daga meðan steypan var að ná fullri hörnun. Stöðvarhúsið er steinsteypt og verður það steinað að utan í dökkum lit til að falla betur að umhverfinu.
Nú þegar er búið að múra það að innan og mála í hvítum lit og ganga frá rafmagni og því sem þarf innandyra.
Vilt þú vita meira?
Hafðu samband við okkur fyrir frekari upplýsingar um verkefni og lausnir.
Hafa samband